til baka á forsíðuna

 

Guðrún Sigurðardóttir

Guðrún Sigurðardóttir er borinn og barnfæddur Víkari. Hún er náttúrubarn í listsköpun og hefur farið ótroðnar slóðir í þeim efnum. Fyrir nokkrum árum kynntist hún leirnum og var það "ást við fyrstu sýn", enda leikur leirinn í höndunum á henni. Í stað þess að fara hinar hefðbundnu leiðir í leirvinnslu hefur Guðrún þróað sína eigin tækni í meðhöndlun á mold, sandi og vikri. Einnig notast hún við lífræn efni sem hún lætur brenna inn í leirinn. Á síðari árum hefur Guðrún farið út í vinnslu á gleri sem tekur jafn einföld og hrein form í höndum hennar. Hún sótti glerlistarnámskeið hjá Glit og hjá Detlef, en lætur ekki þar við sitja og er ófeimin við að gera sínar eigin tilraunir í brennslu allskonar efna með glerinu.
Bæði leir- og glermunir Guðrúnar bera þess merki að hér er um að ræða  listakonu sem lifir sig inn í efniviðinn sinn og vinnur hvern hlut af einlægum áhuga  og ást til listar sinnar.